Selatalningin mikla 2012
Síðan 2007 hefur farið fram árleg selatalning á Vatnsnesi og á Heggstaðarnesi í Húnaþingi vestra á vegum @Selaseturs Íslands á Hvammstanga og er markmið þess að afla þekkingu á fjöldi sela sem dvelja á þessum slóðum. Selatalningin mikla mun einnig vera framkvæmd aftur núna í sumar eða þann 22 júlí næstkomandi og fara talningarnar þannig fram að allir sjáanlegir selir eru taldir samtímis á stórstreymisfjöru á u.þ.b. 100 km strandlengju.
Selatalningin mikla byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða sem vilja taka þátt í rannsóknarstörfum, ásamt því að njóta nærveru sela og náttúru. Talningin er skemmtileg upplifun fyrir alla náttúru- og dýraunnendur og þess má geta að samtals 1033 selir voru taldir í fyrra. Hingað til hefur áhuginn verið mikill bæði meðal heimamanna og ferðamanna.
Upprunalega voru einungis taldir selir á Vatnsnesinu en þar sem áhugi og þátttaka hefur aukist á milli ára hefur Heggstaðarnesinu verið bætt við og verið talið með síðan 2009. Svæðinu er skipt upp í mörg misstór svæði (2-7km löng). Flestir ættu að geta fundið sér svæði við sitt hæfi, hvort sem á við fjölskyldufólk í leit að léttri göngu í fjörunni eða íþróttagarpar að leita að erfiðri gönguferð. Tekið skal þó fram að talningin hentar ekki börn undir 5 ára og börn mega bara taka þátt í fylgd forráðamanna. Að talningunni lokið eru niðurstöðum skilað til verkefnisstjóra og fólki boðið upp á kakó á Selasetrinu. Þátttakendur fá frítt inn á fræðslusafn Selasetursins.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði, hvort sem þú ert heimamaður eða ferðamaður á ferð þinni um landið. Þátttaka er ókeypis !
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku sína í síðasti lagi fimmtudaginn 19. júlí. Til að skrá sig og fá nánari upplýsingar um tímasetningu og fleira má hafa samband í netfang selasetur@selasetur.is eða í síma 451-2345