Selatalningin mikla í næstu viku
Á meðan selatalningunni stendur vinna sjálfboðaliðar með starfsmönnum Selasetursins við að telja seli meðfram Vatnsnesi og Heggstaðarnesi. Strandsvæðinu er deilt í smærri einingar (2-7 km) og sjálfboðaliðum og starfsmönnum skipt í hópa. Áður en lagt er af stað eða klukkan 14:30, verður rannsóknarviðfangsefni Selasetursins kynnt ásamt þeim rannsóknum sem hún mun gagnast. Þegar talningum er lokið verður boðið upp á kaffi og með því og sérfræðingar Selasetursins munu sitja fyrir svörum.
Þeir sem vilja taka þátt í selatalningunni geta mætt á Selasetur Íslands á Hvammstanga klukkan 14:30 fimmtudaginn 21. júlí næstkomandiþ Gott er að skrá þátttöku fyrirfram og er hægt að gera það í netfangið johanng@selasetur.is eða í síma 451-2345. Selatalningin mikla er ekki ætluð börnum yngri en 5 ára. Börn undir 16 ára aldri þurfa að vera í fylgd foreldris/forráðamanns.
Þess má geta að í Feyki í næstu viku verður rætt við fjóra sérfræðinga sem starfa hjá Selasetrinu.