Selja á Þangstaði
Gunnar Steingrímsson kom nýlega á fund skipulagsnefndar Skagafjarðar og gerði grein fyrir að bílavogin við Þangstaði í Hofsósi sé biluð og ekki svari kostnaði að endurnýja hana.
Höfnin á vog sem notuð er í Hofsósi og fullnægir þörfum hafnarinnar. Þá gerði Gunnar grein fyrir að ekki sé lengur þörf að eiga húsið Þangstaði vegna starfsemi hafnarinnar. Samþykkt að afleggja bílavogina, skoða með möguleika á að selja húsið og nýtanlega hluti vogarinnar