Sending af malbikinu í Reykjavík

Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðarskóla skrifar forvitnilega grein hér á Feyki.is þar sem hann gerir grein fyrir umtalsverðum viðhorfaþroska hjá sér eftir að hann hafði vistaskipti úr nýlegum skóla í Reykjavík og kom norður í Skagafjörðinn. þessi vistaskipti hafa fært viðkomandi á nýjan útsýnisstað í skoðunum á lífi, tilveru og skólastarfi almennt.

 

Um þessar mundir eru samræmd próf lögð fyrir nemendur  10., 7. og 4. bekkjum grunnskóla landsins og finnst Ágústi tímasetningin röng. Það sá hann eftir að hann tók við sem skólastjóri lítils sveitaskóla. Ágúst segir:

„Mitt í þessu annríki öllu, göngum og réttum daga og nætur á nýliðnum dögum, kemur sending af malbikinu í Reykjavík sem inniheldur samræmd könnunarpróf. Þau skulu lögð fyrir eftir kúnstarinnar reglum eins og lög gera ráð fyrir og það á sjálfan réttardaginn. Vansælir koma nemendur gnístandi tönnum í skólann þessa morgna, sumir í fylgd foreldra, til að takast á við verkefnið sem skólanum er ætlað að framfylgja. Fullir ábyrgðar en annars hugar ganga þeir til stofu og sinna sínu. Árangurinn, sem ætlað er að vera leiðbeinandi fyrir áherslur vetrarins í námi, kemur svo með pósti daginn sem nemendur fara heim í jólafríið! Aldrei fyrr hefur ritara þessa orða orðið eins áþreifanlega ljóst hversu veruleiki malbiksins er langt frá veruleika sveitarinnar.“ Að endingu gerir Ágúst það að tillögu sinni að tímasetningu samræmdra prófa verði breytt svo öll börn landsins sitji við sama borð og möguleikar verði á betri útkomu úr samræmdum könnunarprófum hjá þeim sem bundin eru yfir haustverkum sveitanna.

Greinina er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir