Séra Gunnar kveður Hofsós- og Hólaprestakall
feykir.is
Skagafjörður
19.03.2015
kl. 13.06
Sr. Gunnar Jóhannesson, sem verið hefur sóknarprestur í Hofsós- og Hólaprestakalli síðastliðin ár, hefur sagt embætti sínu lausu frá og með síðustu mánaðarmótum. Sr. Gunnar kveður söfnuðinn með guðsþjónustu í Hofsóskirkju á sunnudaginn kemur, 22. mars kl. 14:00.
Organisti við messuna er Anna Kristín Jónsdóttir. Á eftir bjóða sóknarnefndirnar til kaffisamsætis í Félagsheimilinu Höfðaborg. Sr. Gylfi Jónsson sem þjónað hefur undanfarið í leyfi sr. Gunnars hefur verið settur sóknarprestur í Hofsóss- og Hólaprestakalli til 1. júlí. Sjö kirkjur tilheyra prestakallinu; Barðs-, Fell-, Hofs-, Hofsóss-, Viðvíkur- og Hólakirkjur.