Setlaug við smábátahöfnina

Höfnin á Sauðárkróki. Mynd/BÞ
Höfnin á Sauðárkróki. Mynd/BÞ

Siglingaklúbburinn Drangey hefur óskað eftir að fá að setja niður heitan pott við smábátahöfnina við Suðurgarð á Sauðárkróki. Pottinum er ætlað það hlutverk að þjóna börnum og unglingum á siglinganámskeiðum og öðrum þeim sem heimsækja klúbbinn og vilja nýta sér aðstöðu hans. Þetta kemur fram í fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá því í morgun. 

Í fundargerð segir að utan þess tíma sem fyrrgreind notkun kveður á um verður potturinn lokaður með palli sem settur verður yfir hann og honum tryggilega læst. Fyrir liggur að Umhverfis- og samgöngunefnd hefur samþykkt erindið. Þá samþykkti Skipulags- og byggingarnefnd jafnframt erindið og leggur áherslu á að potturinn verði tryggilega læstur utan notkunartíma, gengið verði snyrtilega frá umhverfinu í kring og Siglingaklúbburinn tilgreini ábyrgðaraðila fyrir aðstöðunni. Umrætt svæði er í deiliskipulagsmeðferð og er því aðeins um tímabundið leyfi að ræða.

Fleiri fréttir