Sex hljóta umhverfisviðurkenningar

Þessi glæsilegi hópur tók við umhverfisviðurkenningum. Frá vinstri: Þórdís Alda Sigurðardóttir, Gunnar Dungal, Birna Sigurbjörnsdóttir, Sigurgeir Þorsteinsson, Ágúst Andrésson, Steingrímur Felixson, Halldóra Hartmannsdóttir, Stefanía Finnbogadóttir, Guðmundur Magnússon og Inga Katrín Magnúsdóttir. Ljósm./BÞ
Þessi glæsilegi hópur tók við umhverfisviðurkenningum. Frá vinstri: Þórdís Alda Sigurðardóttir, Gunnar Dungal, Birna Sigurbjörnsdóttir, Sigurgeir Þorsteinsson, Ágúst Andrésson, Steingrímur Felixson, Halldóra Hartmannsdóttir, Stefanía Finnbogadóttir, Guðmundur Magnússon og Inga Katrín Magnúsdóttir. Ljósm./BÞ

Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2015 voru afhentar í 11. sinn að Löngumýri síðastliðinn þriðjudag. Að þessu sinni voru veittar sex viðurkenningar en Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar stendur að framkvæmdinni fyrir hönd Svf. Skagafjarðar.

Fyrirkomulagið hefur verið með svipuðu sniði frá upphafi en konur í Soroptimistaklúbbnum skiptasér í sex hópa og fara um allan Skagafjörð, frá Fljótum inn allan fjörðinn að Hofsvöllum í suðri og til norðurs að Hrauni á Skaga. Farið er um sveitir og þéttbýli tvisvar sinnum yfir sumarið og að lokum skila hóparnir tillögum um þá staði sem valið stendur um hverju sinni.

Á þessum ellefu árum hafa 63 staðir fengið viðurkenningu og bættust sex í þann hóp sl. þriðjudag. Líkt og í fyrra var ákveðið að afhenda tvær viðurkenningar fyrir lóð í þéttbýli, þær komu í hlut Stefaníu Finnbogadóttur og Guðmundar Magnússonar að Birkimel 12 í Varmahlíð og Halldóru Hartmannsdóttur og Steingríms Felixsonar í Hólatúni 3 Sauðárkróki. Birna Sigurbjörnsdóttir og Sigurgeir Þorsteinsson á Varmalandi í Sæmundarhlíð fengu viðurkenningu fyrir sveitabýli með búskap en Sigmundur Magnússon á Vindheimum fyrir sveitabýli án búskapar, það var barnabarn hans Inga Katrín Magnúsdóttir sem tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd afa síns.

Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis og veitti Ágúst Andrésson forstöðumaður henni móttöku. Loks hlutu Þórdís Alda Sigurðardóttir og Gunnar Dungal á Stapa – Héraðsdal viðurkenningu sem nefnd er einstakt framtak en á jörðunum hafa farið fram miklar endurbætur, uppgræðsla og skógrækt síðastliðin 10 ár. 

Fleiri fréttir