Síðasta norska jólatréð
Búast má við að íslenskt jólatré muni taka sæti þeirra norsku sem hingað til hafa glatt íbúa Skagafjarðar í áratugi. Vakið hefur athygli að vinabær Svf. Skagafjarðar, Kongsberg, hefur tilkynnt að ekki komi fleiri jólatré þaðan frá og með árinu 2017.
Á fundi byggðarráðs fyrir skömmu var kynnt bréf frá Kongsberg þar sem þetta kom fram og var þeim þakkað fyrir þann hlýhug sem sýndur hefur verið í áratugi með því að senda jólatré að gjöf til íbúa sveitarfélagsins.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðaráðs er líklega um hagræðingu í rekstri að ræða hjá frændum okkar í Noregi. Þá segir hann að þessi mál hafi einnig verið til skoðunar hjá sveitarfélaginu þar sem nokkur kostnaður fylgi flutningum trjáa á áfangastað og fellur á sveitarfélagið.
„Við gerum engar athugasemdir við þetta og munum finna eitthvert fallegt íslenskt tré á næsta ári,“ segir Stefán.