Síðasti útileikur Tindastóls/Hvatar á tímabilinu
Meistaraflokkur Tindastóls/Hvatar í knattspyrnu keppir á móti KF á Ólafsfirði á morgun, sunnudag.
Um er að ræða síðasta útileik tímabilsins og er mikið undir hjá strákunum þar sem þeir þurfa að landa 3 stigum til að tryggja að þeir komist upp í 1. deild að ári.
Leikurinn hefst kl. 14 og eru stuðningsmenn Tindastóls/Hvatar hvattir til að fjölmenna á Ólafsfjörð og hvetja strákana í þessum mikilvæga leik.
Áfram Tindastóll/Hvöt!