Siglufjarðarvegur lokaður frá Fljótum
Það er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum á Norðurlandi. Siglufjarðarvegur frá Siglufirði að Fljótum er lokaður vegna snjóflóðahættu. Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að vegurinn verði skoðaður í birtingu.
Austlæg átt 8-15 m/s verður á Ströndum og Norðurlandi vestra síðdegis í dag og stöku él. Norðlægari og bætir í vind og úrkomu seint á morgun. Dregur úr frosti, víða 1 til 6 stig í kvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Vaxandi austanátt, 13-20 m/s síðdegis. Víða él, en samfelldari snjókoma eða slydda á A-helmingi landsins seinnipart dags. Hiti kringum frostmark, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Norðaustan 15-23 m/s, en hægari vindur á SA-landi og Austfjörðum. Úrkomulítið S- og SV-lands, annars snjókoma og talsverð úrkoma á NA-landi. Hiti um frostmark.
Á föstudag:
Útlit fyrir hvassa norðanátt og snjókomu eða él, en þurrt á S-verðu landinu. Frost 0 til 6 stig.
Á laugardag:
Stíf norðanátt og él á N- og A-landi, en léttskýjað S- og V-lands. Lægir V-til þegar kemur fram á daginn. Frost 2 til 9 stig.
Á sunnudag:
Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan strekkingur og stöku él á NA-horninu. Talsvert frost, einkum í innsveitum.
Á mánudag:
Líkur á suðaustanátt með snjókomu eða slyddu S- og V-lands og hlýnandi veðri.