Sigríður ráðin verkefnastjóri Sumar TÍM
feykir.is
Skagafjörður
08.04.2011
kl. 14.35
Sigríður Arndís Jóhannsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Sumar TÍM fyrir sumarið 2011. Sigríður er tómstundafræðingur að mennt og hefur góða reynslu að stjórnun og rekstri.
Síðustu sex ár hefur Sigríður starfað sem rekstrarstjóri mannauðsmála frístundamiðstöðva ÍTR. Sigríður Arndís mun fljótlega fara af stað með undirbúningsvinnu fyrir Sumar TÍM.