Sigur á Snæfelli í skemmtilegum leik
Tindastólsmenn náðu að hefna fyrir tap í framlengingu í fyrri leik sínum við Snæfell í Lengjubikarnum með því að bera sigurorð af þeim í Síkinu í kvöld í jöfnum og skemmtilegum leik. Heimamenn leiddu lengstum en munurinn varð aldrei mikill og lokamínúturnar æsispennandi og fjörugar. Lokatölur 86-84 fyrir Tindastól.
Liðunum gekk frekar illa að hitta í körfuna í byrjun leiks en Helgi Rafn náði að starta Stólunum og leiddi Tindastóll að loknum fyrsta leikhluta, staðan 17-15. Snæfell náði að jafna í byrjun annars leikhluta en síðan kom góður kafli hjá Stólunum þar sem Pálmi Geir lét að sér kveða, gerði 5 stig, og munurinn varð mestur 7 stig, staðan 38-31. Munurinn fimm stig í leikhléi, 40-35.
Í þriðja leikhluta hélt spennan áfram og Jón Ólafur Jónsson var Stólunum erfiður. Snæfellingar náðu að jafna 40-40 en aftur náðu heimamenn frumkvæðinu, komust í 57-50 eftir 3ja stiga körfu frá Helga Margeirs, en ekki leið langur tími þar til staðan var aftur jöfn, 59-59, og þannig var einmitt staðan áður en fjórði leikhluti hófst. Hann var æsispennandi. Tindastólsmenn voru með örlitla forystu, spiluðu fína vörn og náðu mest að komast 6 stigum framúr. En þegar tæpar tvær mínútur voru eftir komust gestirnir yfir 78-79 en Svavar svaraði með 3ja stiga körfu en Jón Ólafur jafnaði 81-81. Næstu þrjú stigin gerði Svavar af vítalínunni og um 20 sekúndur eftir. Sheldon minnkaði muninn í eitt stig og staðan 84-83. Brotið var á Maurice Miller og hann setti bæði vítin niður og aðeins um 7 sekúndur eftir. Brotið var á Sheldon þegar 4 sekúndur voru eftir, hann hitti úr fyrra skotinu en það síðara geigaði, Snæfellingar náðu boltanum en komu ekki almennilegu skoti á körfuna og Tindastólsmenn fögnuðu sigri, 86-84.
Leikur Tindastóls var á köflum ágætur í kvöld og allt önnur og betri barátta í vörninni. Sóknarleikurinn hefur líka tekið framförum og vonandi að liðið fari nú að hala inn stig í Iceland Express-deildinni. Í heild átti Tindastólsliðið ágætan leik og uppskar góðan sigur sem var vel fagnað. Að leik loknum fögnuðu Tindastólsmenn og stuðningsmenn því að Kári Mar varð 60 ára unglingur í dag með því að syngja afmælissönginn fyrir hann.
Stig Tindastóls: Miller 18, Hampton 15, Svavar 15, Helgi Rafn 12, Rikki 11, Helgi Margeirs 7, Pálmi Geir 5 og Þröstur Leó 3.