Sigur „gömlu kallanna“ á ÍH

Tindastóll/Hvöt mæti ÍH í Hafnarfirði á fimmtudag en leikruinn sem var mikill markaleikur endaði með sex marka sigri okkar manna á meðan heimamen í ÍH komu tuðrunni þrisvar í markið. Fyrir leikinn vorum við með 23 stig í 6.sæti deildarinnar á meðan ÍH vermdu botnsætið með 5.stig. Donni þjálfari hvíldi alla 2.flokks menn okkar í þessum leik, En nokkrir af þeim hafa verið lykilmenn okkar í sumar og sáu því “gömlu leikmennirnir” um baslið.

Leikurinn var flautaður á kl:19:00 af dómara leiksins Sigurhirti Snorrasyni. Jafnræði var með liðunum fyrstu 5 mín leiksins en þá tókum við yfir leikinn að miklum hluta. Byrjuðum að stjóra leiknum á miðjunni með þá Árna Einar, Konna og Ingva Hrannar staðsetta þar. Færin fóru að líta dagsins ljós fljótlega uppúr þessu og fór Dejan þar fremstur í flokki. Ekki tókst okkur að nýta yfirburði okkar í færum fyrr en Arnar Sigurðsson fékk boltann á vinstri kantinum eftir glæsilega sendingu frá Árna Einari og setti hann í netið.

Áfram héldum við að sækja og voru framlínumenn okkar, þeir Arnar, Dejan og Theo mjög líflegir og óheppnir að bæta ekki við mörkum. Það var síðan á 41 mín að við fáum horn, Dejan Miljkovic tekur hana og skorar beint úr spyrnunni. Ekki besta færið sem hann fékk í fyrri hálfleik en skoraði þarna magnað mark.

Staðan var 2-0 í hálfleik og við klaufar að fara ekki inní hálfleikinn með stærra forskot.

Seinni hálfleikur byrjar einsog fyrri endaði með góðum færum sem við náum ekki að nýta. Það er síðan Arnar Sigurðsson sem sólar upp vinstri kantinn í eitt af mörgum skiptum sínum í leiknum, sendir fyrir markið þar sem Dejan er mættur og þarf ekki að gera annað en að pota boltanum yfir línuna.

Það er síðan skömmu eftir þetta að IH fær eitt af fáum færum sínum í leiknum, að félagaskiptakóngurinn Hallur Ásgeirsson fær boltann inní vítateig og setur hann fastan á markið, Gísli í boltanum en nær ekki að halda honum úr markinu.

Færin halda áfram að koma hjá okkar mönnum og skorum við síðan uppúr hornspyrnu þegar Milan sneiðir boltann inn fyrir línu af 10 cm færi. Staðan þarna orðin 4-1 fyrir okkur.

Donni gerir síðan skiptingu skömmu seinna er hann tekur Ingva útaf og Marri kemur inná. Gamli refurinn var ekki búinn að vera lengi inná þegar hann plantar sér á fjær stöng og bíður eftir fyrirgjöf frá Arnari Sigurðssyni, sem kemur með boltann og Marri klárar færið mjög vel. Glæsileg endurkoma hjá The King.

Siðan á 80 mín fá IH sókn sem þeir ná að skora úr. Fyrirgjöf utan af kanti þar sem leikmaður ÍH fær að stökkva óhindrað upp og setur hann snyrtilega yfir Gísla.

Það var síðan Theo Furness nýr leikmaður okkar sem skoraði 6 og síðasta mark okkar eftir laglega sendingu frá Arnari.

Það er síðan uppúr hornspyrnu mínutu seinna að IH skorar aftur og minnka munin og staðan því orðin 6-3. Fengum við eftir þetta nokkra sénsa til að bæta við en ekki tókst það.

Sigurhjörtur dómari leiksins flautaði síðan til leiksloka og lokatölurnar 6-3 og mikilvæg 3. stig í höfn hjá okkur.

Gaman var að sjá spilamennsku okkar manna lengst um í leiknum en sóknirnara voru mjög skemmtilegar oft á tíðum

Byrjurnarlið okkar var: Gísli, Arnar Skúli, Bjarki, Milan, Hallgrímur, Árni Einar, Konni, Ingvi, Arnar Sig, Dejan og Theo

Bekkur: Arnar Magnús, Böddi, Eddi, Fannar & Marri

Fleiri fréttir