Sigur sameinaðra á Selfossi

Lið Tindastóls/Hvatar lék við lið Árborgar á Selfossi í gær og var afar mikilvægt fyrir okkar menn að fara með sigur af hólmi og tryggja stöðu sína á toppi 2. deildar fyrir síðustu þrjár umferðirnar í deildinni sem verða strembnar. Það gekk eftir, sigur vannst og æsispenna framundan.Samkvæmt frétt á fótbolti.net var leikurinn frekar bragðdaufur í fyrri hálfleik og fátt markvert gerðist annað en að Árni Arnarson skoraði með ágætu skoti um miðjan hálfleikinn. Arnar Sigurðsson bætti við öðru marki strax í upphafi síðari hálfleiks og bæði lið fengu ágæt færi í kjölfarið. Það var síðan Arnar sem bætti við öðru marki sínu í leiknum á lokamínútunum. Glæsilegur 0-3 sigur staðreynd.

Sem fyrr segir á lið Tindastóls/Hvatar eftir að spila þrjá leiki í deildinni og eru þeir allir gegn liðum af Norðurlandi. Um næstu helgi kemur lið Dalvíkur/Reynis í heimsókn á Blönduós en þeir Eyfirðingar hafa líkt og lið Tindastóls/Hvatar verið á fínu skriði upp á síðkastið. Síðan verður baráttuleikur á Ólafsfirði gegn sameinuðum Sigl- og Ólafsfirðingum og loks fáum við Völsunga frá Húsavík í heimsókn á Krókinn í síðustu umferð sem verður leikin 17. september. Það er því von á taugastrekkjandi viðureignum í september og strákarnir eiga skilið góðan stuðning eftir frábært sumar í boltanum. Áfram Tindastóll/Hvöt!

Fleiri fréttir