Sigurður Helgi með tónleika

Sigurður Helgi Oddsson verður með tónleika í Félagsheimilinu Hvammstanga, föstudaginn 19. ágúst, kl. 21.

Sigurður Helgi hefur nýverið lokið námi við Berklee College of Music í Boston, þar sem hann lagði stund á nám í tónsmíðum, hljómsveitarstjórnun og kvikmyndatónlist.

Á tónleikunum flytur hann frumsamin verk í bland við íslensk alþýðulög.

Enginn aðgangseyrir er á tónleikana og allir velkomnir.

Fleiri fréttir