Sigurjón vill tryggja rekstur gallerís

Sigurjón Þórðarson óskaði bókað á síðasta fundi sveitastjórnar Skagafjarðar að hann óskaði að áfram yrði tryggð starfsemi í húsnæði sem áður hýsti upplýsingamiðstöð ferðamanna í Skagafirði en þar samhliða var rekið handverksgallerí.

Taldi Sigurjón að þar sem búast megi við miklu mannfjölda í Skagafjörð í tengslum við Landsmót væri brýnt að tryggja þessa þjónustu fyrir gesti og gangandi.

Atvinnumálanefnd hefur samþykkt að styrkja Alþýðulist svo unnt verði að reka starfsemi í húsinu í sumar líkt og undanfarin sumar nema hvað að upplýsingamiðstöðin flytur sig yfir í KS Varmahlíð.

Fleiri fréttir