Sigurlína komin til starfa hjá RML
Sigurlína Erla Magnúsdóttir hefur hafið störf hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins en hún mun starfa sem almennur ráðunautur með aðsetur á Sauðárkróki.
Á heimasíðu RML segir að á starfsstöðinni á Sauðárkróki starfi ásamt Sigurlínu þau Ditte Clausen, ráðunautur í loðdýrarækt, Eiríkur Loftsson, ábyrgðarmaður í jarðrækt, Eyþór Einarsson, ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt og Kristján Óttar Eymundsson, almennur ráðunautur.
.