Sigvaldi Arnar stendur við stóru orðin fer af stað í Umhyggju-göngu

Skemmst er að minnast þegar Sigvaldi Arnar Lárusson gerðist kokhraustur og spáði því að Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn íþróttamaður ársins 2014. „Hafi ég rangt fyrir mér skal ég hlaupa/ganga til Hofsós næsta sumar,“ sagði Sigvaldi á fésbókinni skömmu fyrir kjörið. Nú stendur Sigvaldi við stóru orðin og leggur af stað í Umhyggju-göngu þann 5. júní nk. til stuðnings langveikum börnum.

„Langar mig til að nota tækifærið á hvetja fólk og fyrirtæki til að styrkja karlinn í þessu,“ segir Sigvaldi sem undirbýr sig nú að kappi og hvetur gönguhópa til að slást með í för á leiðinni.

Hægt er að styrkja málefnið með því að hringja í síma:

  • 901 5010 fyrir 1000 kr.
  • 901 5020 fyrir 2000 kr.
  • 901 5030 fyrir 3000 kr.

Sigvaldi verður með húsbíl frá Geysi og verður hann merktur af skiltagerd.is. Þeir sem vilja leggja málefninu lið og kaupa auglýsingu á bílnum verða að hafa samband.

„Ég ætla að selja fyrirtækjum auglýsingapláss á bílnum og er þetta díll ársins þar sem kaupandinn ræður verðinu, en allur ágóði af auglýsingatekjum rennur að sjálfsögðu óskiptur til Umhyggju, sem er félag til stuðnings langveikum börnum,“ segir Sigvaldi.

Hér er facebook-síða Sigvalda, „Umhyggju ganga Keflavík-Hofsós“.

Fleiri fréttir