Sigvaldi og Ellert komnir alla leið í The Voice Ísland

Næst síðasti þátturinn í The Voice Ísland sem SkjárEinn er með á dagskrá var sýndur í beinni útsendingu síðastliðið föstudagskvöld. Sumum finnst eflaust nóg um skagfirskt grobb en þessi þáttur er ekki að gera neitt til að draga eitthvað úr Skagfirðingum því strákarnir okkar, Sigvaldi og Ellert, eru nú komnir alla leið í sjálfan úrslitaþáttinn næstkomandi föstudag.
Að þessu sinni voru það átta söngvarar sem börðust um fjögur laus sæti í úrslitaþættinum. Hver þjálfari var með tvo söngvara og þjóðin valdi í símakosningu hverjir kæmust áfram. Söngvararnir stóðu sig allir með prýði og ómögulegt að segja til um hverjir kæmust áfram.
Sigvaldi Helgi Gunnarsson söng lagið La la la sem Naughty Boy og Sam Smith gerðu vinsælt. Hann lét ekki duga að syngja lagið frábærlega heldur spilaði hann á kassagítar í byrjun og að sögn Sölku útsetti hann lagið líka sjálfur. Hann komst áfram á kostnað Valborgar sem kyrjaði óaðfinnanlega gamla Portishead ballöðu.
Ellert Heiðar Jóhannsson atti kappi við undraröddina hinnar 16 ára gömlu Laufeyjar sem söng lagið Cry Me A River. Ellert sýndi klókindi og fór í íslenska pakkann, átti frábæran flutning á Álfunum hans Magnúsar Þórs Jónssonar. Ekki var leiðinlegt að sjá og heyra Kristján Gísla í bakröddum.
Á hvað skal horfa á föstudaginn?
Það er útlit fyrir að Skagfirðingar verði með skuggalegan valkvíða næsta föstudagskvöld því á sama tíma og lokaþáttur The Voice verður í loftinu mun Útsvarslið Skagafjarðar berjast við sprækt lið Fljótsdalshéraðs á RÚV og til að bæta gráu ofan á svarthvítt verða Tindastólsmenn í beinni á Stöð2Sport þar sem þeir eiga við lið KR í Dominos-deildinni.
Hvað sem verður og hvernig sem allt fer, þá er víst að það verður vart þverfótað fyrir Skagfirðingum í sjónvörpum landsmanna næstkomandi föstudagskvöld.