Síminn til Sauðkrækinga
Ráðgjafar Símans svara spurningunni hvað Síminn getur gert fyrir þig í Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki milli klukkan 11-18 á föstudaginn, 3. maí. „Við þjónustum heimamenn í versluninni; kynnum vörur og skoðum núverandi stöðu þeirra. Ég hvet fólk til að koma, hitta okkur og sjá hvort þjónustustuleiðir þess séu ekki í takt við notkunina,“ segir Sigurður Svansson, viðskiptastjóri sölusamstarfs hjá Símanum.
„Og verði uppsetningu Ljósnetsins lokið á Sauðárkróki getum við tengt þau heimili sem það kjósa strax við háhraðanetið,“ segir hann en tekur fram að í þessu fyrsta skrefi Símans í Ljósnetuppbyggingu á landsbyggðinni nái heimili í 1.000 metra línulengd frá símstöðvum Ljósnetinu.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur verið endursöluaðili Símans í fjölda ára. „Við hjá Símanum erum ánægð með að geta boðið Sauðkrækingum þjónustu heima fyrir – auglitis til auglitis en ekki aðeins í síma,“ segir hann.
En við hverju er að búast? „Við verðum þrír og svörum þeim spurningum sem kvikna,“ segir Sigurður.