Sjálfsafgreiðslukassi kominn í Skagafirðingabúð

Settur hefur verið upp sjálfsafgreiðslukassi í Skagfirðingabúð sem vonir standa til að létti á afgreiðslu á mestu annatímum. Að sögn Árna Kristinssonar, verslunarstjóra, myndast oft miklar raðir við kassana t.d. í hádeginu og ætti sjálfsafgreiðslan þá að vera kærkomin. Afgreiðslukassinn er ekki flókinn að sögn Árna, þar sem hann er myndrænn og talar til viðskiptavinarins og leiðir í gegnum ferlið.
„Ef þú ert t.d. með mjólk getur þú ýtt á M og þá koma upp nokkrir valmöguleikar og þá velur mjólk. Þá er varan skönnuð og fer á vigt til hliðar. Vigtin veit þunga flestra hluta eins og mjólkur svo ef þú setur hana ekki á vigtina getur þú ekki haldið áfram. Þú verður að setja allar vörur sem þú kaupir á vigtina þar sem tölvan veit hvað heildin á að vera þung sem búið er að skanna,“ útskýrir Árni fyrir blaðamanni.
Er fólk hrætt við þetta?
„Nei, það er það ekki. Eldra fólkið er alveg til í þetta og ekki síður en það yngra. Það er alveg til í að prófa.“ Árni segir að enn séu margir í reikningsviðskiptum og þeir verði að fara á afgreiðslukassa því þessir nýju taka eingöngu við kortum.