Sjávarsæla 2015

Sjávarsæla 2015 verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 6. Júní kl. 20:00. Boðið er upp á mat, ball og skemmtun. Veislustjóri er Gísli Einarsson, Sigvaldi Gunnarsson skemmtir og Matt Matt og hljómsveit leika fyrir dansi. Skemmtunin er öllum opin.

Boðið verður upp á fjölbreytt hlaðborð með forréttum, aðalréttum og eftirréttum. „Frábær skemmtun sem er öllum opin og miðaverð aðeins 7.500 kr. Er ekki tilvalið fyrir fyrirtæki, félagahópa og einstaklinga að kveðja veturinn og fagna komandi sumri og mæta á fögnuðinn?“ segir í tilkynningu frá Sjómannadagsráði.

Opnað verður á ballið um miðnætti. Miðaverð á það er kr. 2.000. Opið er fyrir pantanir í síma 453 6454 (Ólafshús) 845 6625 (Kristin) á milli kl 17 og 19. Vakin er athygli á því að aldurstakmark er 18 ára.

Fleiri fréttir