Sjómannadagurinn á Hofsósi

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Hofsósi á sunnudaginn. Dagskráin hefst með helgistund og síðan verður ýmislegt gert sér til skemmtunar á bryggjusvæðinu, svo sem dorgveiðikeppni, koddaslagur og fleira. Einnig verður kaffisala í Höfðaborg.

Dagskrá Sjómannadagsins á Hofsósi 2013:

13:00: Helgistund við minnisvarða um látna sjómenn í Kvosinni.

Sr Gunnar Jóhannesson ásamt kirkjukór Hofsóskirkju leiðir athöfnina.

Eftir helgistundina verður dagskrá á bryggjusvæðinu:

Dorgveiðikeppni, koddaslagur, sigling og fleira.

15:00: Kaffisala Slysavarnardeildarinnar Hörpu.

Allir hjartanlega velkomnir

Björgunarsveitin Grettir og Slysavarnardeildin Harpa

Fleiri fréttir