Skagafjörð vantar aðalbókara
Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er auglýst eftir aðalbókara til starfa sem hefur það á sinni könnu að bera ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess. Í auglýsingu segir að þekking á Navison bókhaldskerfinu sé nauðsynleg sem og reynsla af uppgjörum.
Starfssvið bókarans er að hafa umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi, afstemming og önnur úrvinnsla fjárhagsbókhalds, uppgjör og gerð ársreikninga sem og innra eftirlit. Þá er þarf hann að veita upplýsingagjöf til rekstrareininga og endurskoðenda og til opinberra aðila, aðstoða við áætlanagerð og ýmis önnur verkefni sem til falla hverju sinni.
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2011en nánari upplýsingar eru á heimasíðu Svf. Skagafjarðar.