Skagafjörður tekur við útnefningu sem EDEN gæðaáfangastaður Íslands 2015

Laufey Skúladóttir og Laufey Haraldsdóttir taka við útnefningunni frá Ólöfu Ýr Atladóttur ferðamálastjóra fyrir hönd Skagafjarðar. Ljósm./Skagafjordur.is
Laufey Skúladóttir og Laufey Haraldsdóttir taka við útnefningunni frá Ólöfu Ýr Atladóttur ferðamálastjóra fyrir hönd Skagafjarðar. Ljósm./Skagafjordur.is

Fulltrúar frá Sveitarfélaginu Skagafirði tóku á móti útnefningu Ferðamálastofu sem EDEN gæðaáfangastaður Íslands 2015 á Ferðamálaþingi sem haldið var á Akureyri sl. miðvikudag. Ferðamálastofa er fyrir Íslands hönd aðili að verkefninu, sem stendur fyrir „European Destination of Excellence“.

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að markmið verkefnisins sé að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni. Þema ársins 2015 var matartengd ferðaþjónusta.

Á Ferðamálaþinginu var farið yfir hina ýmsu þætti ferðaþjónustu, umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent ásamt því að afhentar voru viðurkenningar fyrir fyrsta og annað sæti í samkeppninni um gæðaáfangastaðinn 2015. Það var Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri sem afhenti verðlaunin.

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði þingið og ýmsir fyrirlesarar fluttu erindi.

Fleiri fréttir