Skagfirðingar á Meistaramóti Íslands í frjálsum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
12.02.2014
kl. 08.35
Níu Skagfirðingar mættu til leiks á Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss, fyrir aldurinn 11-14 ára, sem fór fram í Reykjavík helgina 8.-9. febrúar. Hátt í 400 keppendur frá 19 félögum og samböndum mættu til leiks. Af þeim voru níu Skagfirðingar, sem stóðu sig með prýði.
Bestum árangri Skagfirðinga náðu:
Guðný Rúna Vésteinsdóttir (12 ára): 3. sæti í kúluvarpi.
Berglind Gunnarsdóttir (13 ára): 4. sæti í kúluvarpi.
Berglind Ósk Skaptadóttir (14 ára): 4. sæti í 60m hlaupi.