Skagfirðingar dottnir úr keppni í Útsvari
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
10.04.2015
kl. 21.08
Skagfirðingar biðu lægri hlut fyrir Fljótsdalshéraði í Útsvari sem lauk í beinni útsendingu á RÚV rétt í þessu. Fljótsdalshérað tók forystu strax í upphafi þáttarins og hélt henni til loka og lauk viðureigninni 68-36.
Lið Skagfirðinga skipa þau Guðný Zöega, Guðrún Rögnvaldardóttir og Vilhjálmur Egilsson. Um var að ræða undanúrslit og hefur lið Skagafjarðar ekki áður komist jafn langt í keppninni.