"Skagfirðingar eru hressir og það stefnir í flott Landsmót“
Skagfirðingar eru hressir og það stefnir í flott Landsmót segir á heimasíðu Landsmóts hestamanna en framkvæmdastjóri og stjórn Landsmót fór nú á dögunum norður í Skagafjörð til þess að funda með fulltrúum sveitastjórnar Skagafjarðar og fulltrúum Gullhyls.
„Svæðið er að mestu tilbúið, Skagfirðingar eru hressir og það stefnir í flott Landsmót“ sagði Haraldur Örn Gunnarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri LH og LM.
Undirbúningur er nú komin á fullt og næsta skref er að opna fyrir miðasölu Landsmóts en það verður vel auglýst þegar að því kemur.