Skagfirðingar í A-landsliðshóp kvenna
Fyrrum Tindastóls leikmennirnir Helga Einarsdóttir og Birna Valgarðsdóttir eru í æfingahópi Sverris Þórs Sverrissonar landsliðsþjálfara kvenna. Helga leikur nú með KR og er annar fyrirliði liðsins og Birna leikur með Keflavík
Samkvæmt heimasíðu kki.is býr landsliðið sig undir þátttöku í Norðurlandamótinu sem haldið verður í Noregi í lok maí á næsta ári. Mun þetta vera fyrsti leikmannahópurinn sem Sverrir velur sem landsliðsþjálfari og hefur hann þegar kallað til fyrstu æfinga sem verða á milli jóla og nýárs.