Skagfirðingar í kröppum dansi
Í það minnsta þrír skagfirskir bílar lentu í 6 bíla árekstri á Holtavörðuheiði um hálf sjö í gærkvöld en óveður var á heiðinni og skyggni lítið. Voru bílarnir í bílaröð þar sem fyrsti bíll lenti í að bíll á móti kom þversum á móti honum og þurfti að stoppa skyndilega og því fór sem fór.
Fólkið hittist síðan allt í Staðarskála þar sem fleiri Skagfirðingar voru á ferð. Voru tjónaskýrslur rifnar upp úr öllum hanskahólfum og fylltar út áður en hópurinn hélt áfram för sinni. Rétt áður en kom að Hvammstangaafleggjaranum hafði síðan jeppi fullur af fólki fokið út af veginum og oltið. Ekki urðu teljandi meiðsli á fólki en bíllinn er trúlega ónýtur.