Skagfirðingar lýsa spennuþrungnu andrúmslofti í Brussel

Hæsta viðbúnaðarstig hefur verið gildandi í Belgíu vegna hryðjuverkaógnar sem hefur vofað yfir í höfuðborginni Brussel undanfarna daga. Víðfeðm leit hefur farið fram af hryðjuverkmanninum, Saleh Abdeslam, sem tók þátt í hryðjuverkaárásinni í París þann 13. þessa mánaðar, en án árangurs. Skagfirðingarnir Guðrún Rögnvaldardóttir og Hildur Þóra Magnúsdóttir hafa verið í Brussel undanfarna daga og lýsa spennu þrungnu andrúmsloftinu þar fyrir Feyki.
Hildur Þóra skellti sér í árlega mæðgnaferð með móður sinni og systrum, sem í þetta sinn var áætluð til Brussel. Hún viðurkennir að hún hafi hugsað sig tvisvar um áður en haldið var utan. „Mamma hefur boðið okkur systrum út í nokkra daga borgarferð á hverju hausti síðustu árin. Í raun skiptir minnstu hvert við förum í hvert skipti, tilgangurinn er bara að vera saman og hafa það skemmtilegt. Ég hugsaði mig um þegar fréttir tóku að berast á laugardagsmorgun að viðbúnaðarstig hefði verið hækkað í Brussel. Ég var meira að segja búið að hafa áhyggjur af þessu alla vikuna, frá því árásirnar voru í París,“ segir hún.
Ferðin var hinsvegar fullborguð, bæði flug og hótel og þeim tjáð að ekki væri hægt að fá hana endurgreidda. „Litla systir mín sem er tvítug vildi alls ekki hætta við og mamma vildi ekki að hún færi ein svo hún ætlaði með. Þetta endaði því með því að við hinar tvær, létum undan og ákváðum að við færum allar.“
Hildur hafði ekki komið til Brussel áður en segir að hún hafi ferðast víða og að þessi ferð hafi verið sú óþægilegasta sem hún hafi upplifað til þessa. „[Það voru ] vopnaðir hermenn og lögreglumenn allsstaðar. Á flugvellinum, lestarstöðinni, úti á götum og svo varð maður að sjálfsögðu líka mikið var við bláu ljósin og sírenurnar. Það voru mjög fáir á ferli og mjög svo fáir sömuleiðis í fluginu, bæði út og heim. Ég var hálf óttaslegin allan tíman þarna úti,“ segir hún.
„Á sunnudagskvöldið mönnuðum við okkur upp í það að fara út að borða en þegar við ætluðum heim var búið að loka öllu svæðinu í kringum hótelið okkar sem stendur við Zuidstraat. Við vorum því á kolröngum stað á röngum tíma og hermenn höstuðu á okkur og sögðu okkur að hlaupa burt. Það fannst mér mjög óþægileg staða að lenda í og ég get alveg viðurkennt að hjartað á mér sló mjög hratt, lengi á eftir,“ segir Hildur.
Mæðgurnar eyddu mestum tímanum í Brussel inni á hótelinu en einum degi vörðu þær í bænum Gent, sem er um 40 mín frá Brussel. Þar segir Hildur andrúmsloftið hafa verið mun afslappaðra. Hún kom heim til Íslands í fyrradag og segist glöð að vera aftur komin í öryggið í Skagafirðinum.
Hermenn með alvæpni og mundaðar vélbyssur
Guðrún starfar sem framkvæmdastjóri Staðlaráðs og er stödd í Brussel til að sækja fund evrópsku staðlasamtakanna CEN, en hún er einn af þremur varaforsetum samtakanna, og einnig fund hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Fundir CEN voru á mánudag og þriðjudag en fundurinn hjá ESB er í dag. Í gær ætlaði hún að sækja vinnufund á vegum CEN, um stöðlun í upplýsingatækni, en þeim fundi var aflýst vegna ástandsins.
„Þessir fundir eru ákveðnir með allt upp í árs fyrirvara. Ég var reyndar um helgina í heimsókn hjá dóttur minni og tengdasyni í Kaupmannahöfn, og það var held ég ekki fyrr en ég var komin þangað sem ég frétti af hækkuðu viðbúnaðarstigi í Brussel. Um helgina komu tölvupóstar frá fundarboðendum um að fundirnir yrðu haldnir þrátt fyrir ástandið, nema miðvikudagsfundurinn, sem var afboðaður á mánudag. Mér datt ekki í hug að hætta við,“ segir Guðrún aðspurð um hvort það hafi ekki hvarflað að henni að halda sig fjarri borginni vegna ástandsins.
„Ég flaug frá Kaupmannahöfn til Brussel á mánudagsmorgun og hafði aðallega áhyggjur af að verða of sein á fundinn, því ég vissi að neðanjarðarlestakerfið væri lokað og átti því von á að erfitt yrði að fá leigubíl. En það var nú eitthvað annað, það var engin bið eftir leigubíl og umferðin mun minni en vanalega.“
Guðrún segist mjög oft koma til Brussel en þetta er níunda skiptið sem hún heimsækir borgina á þessu ári. „Á mánudagskvöld fór ég gangandi í kvöldverðarboð í tengslum við fundinn og gekk framhjá nokkrum hópum hermanna með alvæpni og mundaðar vélbyssur, aðallega við stór hótel. Í gær labbaði ég svo aðeins um hverfið hérna og það var sama sagan, fullt af hermönnum og lögreglu, neðanjarðarlestarstöðvar lokaðar, flestar verslanir lokaðar. Mér fannst ég ekkert óörugg, en ástandið er vissulega skrítið,“ segir hún.
Þegar blaðamaður Feykis ræddi við Guðrúnu í gær var hún stödd á skrifstofu CEN. Hún sagði allt virðast með kyrrum kjörum, jafnframt að hún fyndi ekki fyrir ótta né skynjaði hún það af heimamönnum. „Ég er heldur ekkert að þvælast á stöðum þar sem er mikill viðbúnaður. [...] Fólk segir mér að sumir hafi unnið heima síðustu tvo daga, enda erfitt að komast til vinnu og skólar lokaðir. Mér finnst fólk ekki vera hrætt, tekur ástandinu bara af æðruleysi, en hefur kannski áhyggjur af því hvað gerist þegar viðbúnaðarstig verður lækkað á ný.“
Guðrún fer heim til Íslands í kvöld en stefnir á að fara á ráðstefnu í Doha í Katar eftir tvær vikur, sem fulltrúi CEN. Hún segist ekki sjá ástæðu til þess að breyta plönum sínum út af ástandinu, ekki á meðan stjórnvöld ráði fólki ekki frá því að ferðast.