Skagfirðingar með rallýsigur á Snæfellsnesinu!

Um helgina fór fram á Snæfellsnesi  fimmta keppnin í Íslandsmeistaramótinu í rallý þar sem tólf   áhafnir voru skráðar til leiks.  Keppnin byrjaði á föstudagskvöldi þegar keyrðar voru tvær sérleiðir og svo hélt keppnin áfram á laugardeginum en þá voru keyrðar átta sérleiðir. Mikil þoka var á svæðinu sem gerði keppnina erfiðari en átta áhafnir kláruðu keppnina.

 

Sigurvegarar í Snæfellnesrallý 2011 voru Valdinar Jón Sveinsson og Heimir Snær Jónsson, í 2. sæti voru Þorsteinn Páll Sverrirson og Witek Bogdanski  og í 3. sæti Skagfirðingarnir Þórður Ingvason og Björn Ingi Björnsson.

Bílaklúbbur Skagafjarðar átti 3 áhafnir í þessari keppni sem er mjög gott og há prósenta miðað við stærð klúbba og mega Skagfirðingar vera stoltir þar sem þær kláruðu allar keppnina sem er alls ekki sjálfgefið og fyrsta áhöfn náði tvöföldu verðlaunasæti.

Þórður Ingvarsson og Björn Ingi Björnson lentu í 3. sæti yfir heildina (aðeins rúmum 4 mín. á eftir fyrsta sæti) og sigruðu jeppaflokkinn og eru orðnir Íslandsmeistarar í jeppaflokki. Björn Ingi Björnson er einnig komin með titilinn nýliði ársins sem aðstoðarökumaður og er þetta í fyrsta sinn sem BS eignast Íslandsmeistara í ralli.  Einnig er gaman að geta þess að Þórður og Björn eru einu keppendurnir sem að hafa mætt í og klárað öll röll sumarsins sem er frábær árangur.

Í samtali við Þórð segir hann að tilfinningin sé mjög góð og aðspurður hvort hann hafi fellt tár sagði hann „já bara næstum því, því þetta var svo gaman en jafnframt mjög erfitt því skyggnið var mjög slæmt vegna þoku“. Þórður segir að Skagfirðingar séu tvímælalaust rallý sigurvegarar ársins og hvetur alla til að halda áfram að fylgjast með rallý því þeir ætli að halda áfram á sömu braut það sem eftir er árs og á næstu árum. Hann vill koma fram þakklæti til KS og Tengills fyrir góðan stuðning.

Baldur Haraldsson og Elvar Jónsson lentu í 4. sæti (aðeins 8 sek á eftir 3. sætinu) en þeir náðu 2. sæti í Non Turbo flokki.  Baldur er í toppslag um Íslandsmeistaratitilinn í þessum flokki  en hann og Þorsteinn Páll eru jafnir í Íslandsmeistaramótinu, þannig að ljóst er að slagurinn verður harður í síðasta rallý ársins. Þeir félagar eru líka jafnir til stiga í 3.-4. sæti yfir heildina til  Íslandsmeistara í flokki ökumanna eins og staðan er í dag.

Í samtali við Baldur segist hann hafa tapað tíma á fyrstu tveimur sérleiðum á laugardagsmorgni  vegna  dekkjavandræða því hann affelgaði á fyrstu leið og sprengdi á annari leið.  Einnig voru aðstæður erfiðar og skyggni mjög lítið vegna þoku en Baldur segist vera klár í slaginn fyrir haustrallið og lofar skemmtilegum slag um Íslandsmeistaratitilinn.

Anton L.  Ingason og Þórður Sighvatsson lentu í 7. sæti og 2. sæti í jeppaflokki. Þetta er fyrsta rallý Antons sem ökumaður en hann hefur tvisvar verið aðstoðarökumaður og þetta er önnur keppnin Þórðar sem aðstoðarökumaður.

Fleiri Skagfirðingar voru í hópnum því Guðný  Jóna Guðmarsdóttir  var að keppa í sínu fyrsta ralli en hún og  Aðalsteinn Símonarson  lentu í 5. sæti og sigruðu eindrifsflokkinn.  Alli hefur keppnisreynslu sem aðstoðarökumaður  en Guðný hefur reynslu sem starfsmaður og var í BS m.a  eitt ár í stjórn  áður en hún flutti í Borganes.

Síðasta rallið í ár fer fram  mánaðmóta helgina sept/okt á Suðurlandi.

Lokastaðan  í  rallinu. Heildartími  í sviga .

  1. Valdimar og Heimir. (1:07:10)
  2. Þorsteinn og Witek. (1:08:15)
  3. Þórður og Björn.  (1:11:32)
  4. Baldur og Elvar. (1:11:40)
  5. Aðalsteinn og Guðný. (1:15:32)
  6. Björgvin og Guðríður. (1:23:35)
  7. Anton og Þórður. (1:30:30)
  8. Jóhannes og Gunnar. (1:46:58)

Fjórar áhafnir náðu ekki að klára.  Heimamennirnir Einar og Símon veltu og fór tímareim í kjölfarið en þeir sluppu. Tengli fór í bíl Sighvatar og Úlfars, Millikassi gaf sig í bíl hjá Þorkeli og Símoni og vél og drifrás í ólagi hjá Braga og Magnúsi.

Hægt að skoða tíma og fleiri upplýsingar á síðunni http://www.tryggvi.org/rallytimes

Fyrir hönd BS óska ég okkar fólki innilega til hamingju með frábæran árangur og einnig öðrum sigurvegurum og hvet fólk til að fylgjast með lokaslagnum í Íslandsmeistaramótinu þetta árið. Þeir sem hafa áhuga á mótorsporti eru líka alltaf velkomnir í BS

Texti : Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir formaður BS.

Myndir: Hrefna Gerður Björnsdóttir.

.

 

Fleiri fréttir