Skagfirðingar með silfurverðlaun

Á hverju ári veitir Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík þeim sveinum sem náð hafa frábærum árangri á sveinsprófi verðlaun og meisturum þeirra viðurkenningu. Við sama tilefni útnefnir IMFR Heiðursiðnaðarmann ársins og í tilefni af ári nýsköpunar þá mun félagið einnig veita Nýsköpunarviðurkenningu IMFR 2011.

Verðlaunahátíðin var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur og er undir verndarvæng forseta Íslands sem afhendir verðlaunin ásamt formanni félagsins. Hátíðarræður flytja menntamálaráðherra og borgarstjóri Reykjavíkur og iðnaðarráðherra mun afhenda Nýsköpunarviðurkenninguna sem veitt verður í ár í tilefni af ári nýsköpunar.

Þeir sem hlutu verðlaun nýsveina í þetta sinn voru 7 rafiðnaðarmenn, 3 húsgagnasmiðir,  2 matreiðslmenn, 2 múrarar, 1 bakari, 1 klæðskeri og 1 framleiðslumaður. 

Á verðlaunahátíðinni um síðustu helgi hlutu tveir Skagfirðingar silfurverðlaun. Þetta voru þeir Kristþór Ragnarsson, múrari og Jónas Rúnar Guðmundsson, rennismiður. Einnig fengu meistarar iðnsveinanna viðurkenningu. Meistari Kristþórs er Baldur Haraldsson múrarameistari í Skagafirði en meistari Jónasar er Hákon Þorleifsson.

Fleiri fréttir