Skagfirðingar unnu Ísfirðinga í Útsvari

Berglind, Guðrún og Indriði skipa Útsvarslið Skagfirðinga í ár. Mynd: ruv.is.
Berglind, Guðrún og Indriði skipa Útsvarslið Skagfirðinga í ár. Mynd: ruv.is.
Í Útsvarsþætti á RÚV í gærkvöldi áttust við lið Skagafjarðar og Ísafjarðarbæjar. Skagafjörður hélt forystu allan tímann og sigraði að lokum með 84 stigum gegn 47 stigum Ísafjarðarbæjar. Liðið er skipað þeim Berglindi Þorsteinsdóttur, Guðrúnu Rögnvaldardóttur og Indriða Þór Einarssyni.
 

Nú er staðan þannig að fjórða stigahæsta tapliðið Hveragerði með 66 stig og því ljóst að Ísafjarðarbær nær ekki inná þann lista. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi gengi Skagfirðinga í næstu umferð.

Fleiri fréttir