Skagfirðingasveit á búningum Tindastóls í stað Landsbankans
Landsbankinn og Tindastóll hafa gert samstarfssamning um stuðning bankans við knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild félagsins. Samhliða því hefur Landsbankinn afsalað sér auglýsingum á búningum hjá íþróttafélaginu Tindastóli og bauð félaginu að velja sér í staðinn gott málefni á búningana. Tindastóll valdi Björgunarsveitina Skagfirðingasveit. Merki félagsins prýðir því búninga félagsins næsta ár en í merkinu er fjallið Tindastóll.
Þetta er gert í takt við nýja stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög undir yfirskriftinni Samfélag í nýjan búning. Markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál. Alls eru ellefu íþróttafélög þátttakendur í verkefninu með Landsbankanum og hvert þeirra hefur valið sitt málefni í samvinnu við bankann.
Stofnaður verður áheitasjóður fyrir Skagfirðingasveit og greiðir bankinn ákveðna upphæð fyrir hvern sigur meistaraflokka Tindastóls karla og kvenna á Íslandsmótum í knattspyrnu og körfuknattleik. Öðrum fyrirtækjum og einstaklingum er frjálst að heita á liðið sitt og leggja þannig góðu málefni lið.
Í tilefni af stofnun áheitasjóðsins mun Landsbankinn styrkja Björgunarsveitina Skagfirðingasveit með styrk að upphæð 500.000 krónur.
„Við erum mjög stolt af stuðningi okkar við Tindastól. Hugmyndafræði bankans að baki verkefninu Samfélag í nýjan búning snýst um að tengja saman íþróttafélög og samtök eða félög sem láta að sér kveða í mannúðarmálum,“ segir Birgir Rafn Rafnsson, útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. „Með þessum hætti geta íþróttafélögin og stuðningsmenn þeirra eða aðrir styrktaraðilar tekið þátt í því með Landsbankanum að styðja við mannúðarmál.“
Fyrirmyndir verkefnisins
Verkefnið Samfélag í nýjan búning á sér fyrirmyndir. Í tengslum við Landsbankadeild karla og kvenna stóð Landsbankinn fyrir verkefninu Skorað fyrir gott málefni á árunum 2006-2007. Bankinn greiddi þá ákveðna upphæð fyrir hvert mark sem liðin skoruðu í tilteknum umferðum Landsbankadeildarinnar og rann hún til málefna sem félögin völdu sér. Markmiðið var þá eins og nú að tengja saman stuðning við íþróttir og mannúðarmál. Landsbankinn sækir einnig innblástur í framtak meistaraflokks kvenna í Aftureldingu sem síðustu þrjú ár hefur vakið athygli á árvekniátakinu Bleiku slaufunni með því að hafa hana framan á búningum liðsins.
Mynd: Frá undirritun samstarfssamnings Tindastóls og Landsbankans.