Skagfirðingur bankastjóri á Hellu

Skagfirðingurinn Jóhannes Hr. Símonarson tekur um næstu mánaðarmót við starfi bankastjóra Arionbanka á Hellu. Jóhannes, sem er frá Ketu í Hegranesi, hefur starfað bæði sem aðstoðarútibússtjóri á Hellu en var nú síðast viðskiptastjóri bankans á Suðurlandi. Sagt er frá þessu í Fréttablaði Suðurlands.

Jóhannes tekur við starfinu af Birni Sigurðssyni sem lætur af störfum eftir 48 ára starf fyrir Arionbanka og forvera hans.

 

Fleiri fréttir