Skagfirskar kýr á toppnum

Niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir júní 2011 eru nú komnar út hjá Bændasamtökunum og hafa orðið allnokkrar breytingar á stöðu búa og kúa frá síðasta uppgjöri. Þannig hefur Hófý frá Keldudal náð efsta sætinu af Grásu frá Gunnbjarnarholti og jafnframt reiknast nú meðalafurðirnar í Reykjahlíð hæstar yfir landið eftir langa setu Hraunsháls í efsta sæti.

Samkvæmt vef Landssambands kúabænda komu alls 605 bú til uppgjörs sem eru hlutfallsleg skil upp á 90%, en 607 bú voru með í mánuðinum þar á undan. Fjöldi árskúa í þessum skýrsluskilum var 21.360 eða 36,5 árskýr að jafnaði á hvern skýrsluhaldshafa. Í maí sl. var meðalfjöldinn sá sami.

Mestar meðalafurðir búa með færri en 40 árskýr eru nú á Hóli í Sæmundarhlíð (34,0 árskýr) en þar var meðalnytin 7.796 kg með 4,07% fitu og 3,49% próteini og magn verðmætaefna mjólkurinnar því að jafnaði 589 kg. Undanfarna mánuði hafði Hraunháls setið fast á toppnum í þessum flokki búa, en er nú skammt undan!

Afurðahæsta kýr landsins (reiknað út frá kg mjólkur) er nú ný á toppnum en það er kýrin Hófý (undan Stíg 970010) frá Keldudal í Skagafirði með 11.690 kg sl. 12 mánuði með 3,46% próteini og 4,37% fitu og verðmætaefnin því alls 915 kg.

Fram kemur í yfirliti BÍ að 6 kýr mjólkuðu yfir 11 þúsund kg en engin fór yfir 12 þúsund kg.

/Naut.is

Fleiri fréttir