Skagfirskar skemmtisögur í 5. sinn – Endalaust fjör!
Fimmta bindið af Skagfirskum skemmtisögum er komið út hjá Bókaútgáfunni Hólum. Sem fyrr er það Skagfirðingurinn og blaðamaðurinn Björn Jóhann Björnsson sem tekur sögurnar saman. Þær eru orðnar vel á annað þúsund í bindunum fimm og hafa að geyma óborganlegar sögur af Skagfirðingum til sjós og lands, allt frá ofanverðum miðöldum til dagsins í dag. Hafa bækurnar hlotið fádæma viðtökur um allt land, ekki bara í Skagafirði, og verið ofarlega á metsölulistum bókaverslana.
Að þessu sinni eru um 200 sögur héðan og þaðan úr Skagafirði, allt frá Fljótum í norðri til Akrahrepps í suðri. Króksarar fyrr og nú koma mikið við sögu, sem og Hofsósingar og nærsveitamenn. Sagt er frá ævintýralegum hestaviðskiptum við Stebba á Keldulandi og birt smásagan Raunir á Reyðarskeri.
Í Skagfirskum skemmtisögum 5 eru einnig sögur af því þegar:
- Séra Þórir Stephensen var kallaður til skítverka hjá Jóni í Ketu
- Stína Sölva hélt þingmenn Sjálfstæðisflokksins vera Álftagerðisbræður
- Guðjón í bakaríinu rak sig upp undir
- Ása Öfjörð kláraði messuvínið í Barðskirkju
- Óskar Pétursson frá Álftagerði kannaði lagerstöðuna á elliheimilinu
- Óskar Þorleifs meig á milli brjóstanna á hafmeyju
- Sæmundur Hermanns sagði veggina hafa eyru
- Séra Guðbjörg vígði kaffistofuna á vélaverkstæðinu
- Ingvi Hrafn hljóp skælandi heim í Stóru-Gröf
- Séra Gunnar í Glaumbæ gat haldið áfram að drekka
- Siggi í Salnum sagðist ekki ætla að skjóta Munda í Tungu
- Hilmir Jó hundskammaði Steina Birgis
- Steingrímur á Silfrastöðum sagði kirkjuna sína rúma heilt helvíti
- Pétur á Hjaltastöðum tapaði gómnum
- Andrés Valberg seldi sömu hauskúpuna tvisvar eina fagra nótt í Reykjavík
- Binni Júlla plataði Kára Steins
- Jón Ósmann gleymdi Sigga í handarkrikanum
- Seðlabankamenn hringdu í Hörð á Hofi
Skagfirskar skemmtisögur koma öllum í gott skap og hægt að nálgast hana í öllum helstu bókaverslunum landsins. Að sögn höfundar, Björns Jóhanns Björnssonar, er bókin væntanleg í Skagfirðingabúð, og KS Varmahlíð næstkomandi þriðjudag.