Skagfirskir nemendur skara framúr
Á heimasíðu Skagafjarðar segir frá því að nýlega voru birtar niðurstöður úr svokallaðri Pisa könnun OECD. Pisa er umfangsmikil alþjóðleg rannsókn á hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði, stærðfræði og þrautalausn. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti. Á fundi sem haldinn var í Safnahúsinu þann 1. mars s.l. kynnti Almar Halldórsson, verkefnisstjóri Pisa á Íslandi, niðurstöðurnar sem sýna að skagfirskir nemendur skipa sér á bekk með þeim allra bestu á landinu í öllum fögum, eða í 2. sæti í læsi og stærðfræði og 3. sæti í náttúrufræði. Það góða í þessu er einnig að þeir halda stöðu sinni frá síðustu könnun. Í kynningu Almars kom einnig fram að það sem ræður mestu um árangur íslenskra nemenda er það starf sem fram fer í skólastofunni en aðrir þættir eins og þjóðfélagsleg og efnahagsleg staða foreldra hafa lítil áhrif á árangurinn. Full ástæða er til að óska nemendum, kennurum þeirra og öllu starfsfólki skólanna til hamingju með þennan framúrskarandi árangur. Mikilvægt er að við, íbúar í Skagafirði, séum meðvituð um það góða starf sem unnið er í skagfirskum skólum og sýnum vilja og metnað til að hlúa áfram að skólastarfinu og nemendum okkar á öllum sviðum.