Skagfirskir tónlistarmenn í Eurovision
Fimmtán lög hafa verið valin til að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 og eiga skagfirðingar tvö af lögunum fimmtán, þeir eru Ellert H. Jóhannsson og Gestur Guðnason.
Skagfirsku tónlistarmennirnir eru engir nýgræðingar í tónlistarbransanum en Ellert H. Jóhannsson var m.a. í hljómsveitinni Von um árabil og Gestur Guðnason var í hljómsveitunum Númer 0 og Nix Noltes.
Á ruv.is segir að 164 lög bárust þegar auglýst var eftir lögum til þátttöku. Keppnin hefst þann 14. janúar og verður fyrirkomulagið á þann veg að fimm lög keppa í senn í beinni útsendingu frá myndveri Sjónvarpsins. Áhorfendur og dómnefnd velja lög sem koma til með að komast áfram í úrslitaþáttinn og hefur símkosning helmingsvægi á móti atkvæðum dómnefndar.
Úrslitakvöldið verður laugardagskvöldið 11. febrúar og mun lagið sem ber sigur úr býtum verða framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Bakú í Aserbaídsjan í maí á næsta ári.
Hér má sjá lista yfir þá lagahöfunda sem taka þátt:
- Axel Árnason og Ingólfur Þórarinsson
- Árni Hjartarson
- Ellert H. Jóhannsson
- Gestur Guðnason
- Greta Salóme Stefánsdóttir (tvö lög)
- Herbert Guðmundsson og Svanur Herbertsson
- Hilmar Hlíðberg Gunnarsson
- Magnús Hávarðarson
- María Björk Sverrisdóttir, Fredrik Randquist og Marcus Frenell
- Pétur Arnar Kristinsson
- Sveinn Rúnar Sigurðsson (þrjú lög)
- Valgeir Skagfjörð