Skagfirskt hveiti slær í gegn

Skagfirska hveitið, sem selt er til fjáröflunar fyrir ferð unglinga úr frjálsíþróttadeild Tindaastóls á Gautaborgarleikana í sumar, fæst nú í hentugum sérsaumuðum geymslupokum. Sauðárkróksbakarí farið að baka úr því líka.

Þeir sem vilja prófa að baka úr hveitinu frá Stóru-Ökrum og styrkja um leið þetta bráðefnilega unga íþróttafólk úr Skagafirði geta nálgast poka hjá Herdísi í Kompunni á afgreiðslutíma verslunarinnar, virka daga milli kl. 13 - 18.  Pokinn kostar 1900 kr. og inniheldur 2 kg af hveiti, en síðan er hægt að kaupa áfyllingar á pokann.  Allur ágóði rennur í ferðasjóðinn frjálsíþróttakrakkanna.

Hveitið slær í gegn því nú býður Sauðárkróksbakarí upp á úrvals brauð bakað upp úr þessu skagfirska hveiti og eru allir hvattir til að prófa tandurhreina skagfirska framleiðslu.

–Þetta verður ekki meira spennandi, að fá hveitið beint af akrinum, segir Róbert bakari en tilraunir hafa staðið yfir að undanförnu með baksturinn og hefur tekist vel.

Fleiri fréttir