Skagfirskt hveiti til sölu
Krakkar í frjálsíþróttadeild UMSS eru þessa dagana í fjáröflum til að fjármagna keppnisferð þeirra til Gautaborgar í sumar. Meðal söluvarnings er hveiti sem ræktað er í Skagafirði.
-Við erum með magnað hveiti sem ræktað er hjá Gunnari Sigurðssyni á Stóru-Ökrum. Þetta er venjulegt hveiti, gróft hveiti og hveitikurl sem pakkað er í tveggja kílóa poka sem við seljum á aðeins 400 krónur stykkið, segir Sigurjón Leifsson formaður frjálsíþróttadeildar Tindastóls.
-Einnig erum við með afbragðs flatkökur til sölu, 400 gramma pakkning á 500 kr.
Nú er bara að stökkva til og prófa skagfirska hveitið og að sjálfsögðu flatkökurnar líka en hægt er að panta þessar eðalvörur í símum 848-4152, 863-3962 og á netfangið steinadana@talnet.is