Skálmöld Einars Kárasonar á Sögudeginum
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
14.08.2015
kl. 08.54
Hinn árlegi sögudagur á Sturlungaslóð verður á morgun, laugardaginn 15. ágúst. Sigurður Hansen sagnaþulur tekur á móti gestum á Örlygsstöðum og segir frá atburðum Sturlungu.
Ásbirningablótið verður í Kakalaskála í Kringlumýri klukkan 19. Þar mun Einar Kárason rithöfundur ásamt Júlíu Margréti flytja leikþáttinn Skálmöld. Að leikþætti loknum verður boðið upp á léttar veitingar að hætti miðaldamanna.
Miðaverð er 5000 krónur og panta þarf fyrir klukkan 17 föstudaginn 14. ágúst á Hótel Varmahlíð í síma 453 8170.