Skemmdarvargar enn á stjái

Það leið ekki langur tími frá því að gert var við skemmdir sem unnar voru á ártalsljósunum á Sauðárkróki er skemmdarvargar fóru aftur af stað. Ljósin sem sýna ártal dagsins voru lituð með spreylakki í gærkvöldi og eru nú rauð og gul.

Að sögn Gunnars Péturssonar verkstjóra hjá Svf. Skagafirði virðist sem skemmdirnar hafi verið unnar á bilinu frá klukkan 23:00 – 01:30 í gær og segir hann að fara þurfi í kostnaðarsamar hreinsunaraðgerðir á ljósunum. rauðum lit var spreyjað á tvo stafi og gulum á hina tvo.Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um mannaferðir við ljósin á þessum tíma eða hafa aðrar upplýsingar um hver eða hverjir voru þarna að verki eru beðnir um að láta lögreglu vita.

Fleiri fréttir