Skemmtileg eða leiðinleg vangavelta?
Herra Hundfúll var að velta því fyrir sér hvort leiðinlegu fólki fyndist það sjálft vera skemmtilegt. Og þá líka hvort skemmtilegu fólki fyndist það sjálft vera leiðinlegt. En sennilega er þetta ekki svona einfalt?
Fleiri fréttir
-
Rabb-a-babb 245: Arney
Við röbbum við Arneyju Sindradóttur þessa vikuna, eiginkonu Þórðar Karls Gunnarssonar, móður Gunnars Atla, Ólafs Bjarna og Eldeyju Sifjar, dóttur Ernu og Sindra á Breið. Arney sleit barnsskónum fram í Lýtingsstaðarhreppi þar sem hún er næst yngst fjögurra systkina. Býr í dag á Sauðárkróki og starfar sem skrifstofustjóri á Stoð ehf. verkfræðistofu þar sem Þórður Karl teiknar og hún rukkar fyrir eins og hún kemst sjálf að orði. Spurð út í nám svarar Arney því til að það hafi fyrst verið Steinsstaðaskóli og síðar Varmahlíðarskóli sem segir allt sem segja þarf, og ei þörf á að tíunda námsferilinn neitt frekar.Meira -
Tómatsúpa og súrdeigsbrauð | Matgæðingar vikunnar
Það eru Brynja Sif Harðardóttir, Skagfirðingur, og Hannes Ingi Másson, Húnvetningur, sem voru matgæðingar í tbl. 36, 2025. Þau búa á Sauðárkróki ásamt strákunum sínum tveimur; Óliver Mána og Manúel Jóa. Þegar þessi þáttur fór í birtingu var Hannes Ingi að spila körfubolta með Tindastól og Brynja var í fæðingarorlofi.Meira -
Húnvetningar hófu leik í Lengjubikarnum í dag
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 21.02.2026 kl. 21.43 oli@feykir.isHúnvetningar eru óvenju snemma í því að hleypa knattspyrnugæðingum sínum á skeið en líkt og Tindastóll þá hóf lið Kormáks/Hvatar leik í Lengjubikarnum í dag. Leikurinn fór fram í Knatthúsi Hauka en andstæðingarnir voru KÁ (Knattspyrnufélag Ásvalla). Líkt og á Króknum voru úrslitin ekki þau sem við sóttumst eftir en lið KÁ sigraði örugglega 5-1.Meira -
„Betra fótboltaliðið tapaði í dag“
Karlalið Tindastóls spilaði í dag á teppinu á Króknum fyrsta leik vetrarins. Þetta var fyrsti leikur liðsins í Lengjubikarnum og komu andstæðingarnir norðan úr Eyjafirði – nú eða austan – frá Dalvík og Árskógsströnd. Ekki voru úrslitin eins og við hefðum viljað hafa þau þar sem gestirnir unnu 3-0 sigur en Feykir hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að betra liðið hafi orðið að sætta sig við tap.Meira -
Hefur fengið að kynnast alvöru fótboltabullum | Sævar Birgisson heldur með Arsenal
Sævar Birgisson þekkja eflaust fáir á þessu svæði enda ekki héðan. Sævar flutti á Krókinn síðasta haust en kemur frá Grindavík og Eyjum, að hans sögn, og kennir nú við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Samstarfskonan hans, Lee Ann, var svo „góð" að skora á hann að taka við þessum skemmtilega þætti, Liðið mitt, í Feyki stuttu eftir að hann byrjaði að kenna og var fátt um svör svona fyrst um sinn. En þegar hann fékk áminningu nú á dögunum var hann snöggur að skila af sér enda hefur gengið vel hjá hans mönnum undanfarið. En snúum okkur að spurningunum...Meira
