Skíðasvæðið opið í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
27.01.2014
kl. 13.01
Skíðasvæði Tindastóls verður opið frá kl. 17-19 í kvöld og því upplagt að skjótast á fjallið eftir vinnu, segir á Facebook-síðu skíðasvæðisins. Í dag er austan og norðaustan 5-10 m/s á Norðurlandi vestra og dálítil él. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust úti við sjóinn.
Hér fyrir neðan má sjá myndband sem tekið var á Skíðasvæðinu Tindastóli á dögunum en þar má m.a. sjá svokallað „Crazy Roller“ sem er skemmtilegt leiktæki og spennandi kostur fyrir þá sem koma á svæðið hvort sem þeir ætli á skíði eða ekki.
http://youtu.be/m1vYxjQ5To0