Skjalavarsla sendiskrifstofanna verði á landsbyggðinni
Í frumvarpi til fjárlaga 2016 leitar utanríkisráðherra eftir 26 milljóna króna framlagi til að opna starfsstöð á landsbyggðinni til að sinna skjalavörslu fyrir sendiskrifstofur.
Um síðustu áramót var farið að vinna eftir nýju verklagi við skjalavörslu þannig að ekki er lengur þörf á að geyma pappír vegna mála sem stofnuð eru frá og með 1. janúar 2015, nema sérstök ástæða þyki til, aðeins er gert ráð fyrir rafrænum skilum. Hins vegar þarf að prenta út og ganga frá öllum skjölum á eldri málum.
Þetta átak er of tímafrekt fyrir fámennar sendiskrifstofur og ekki hægt að bæta því við verkefni skjalasafns utanríkisráðuneytisins í Reykjavík án þess að fjölga starfsfólki. „Í ljósi áherslu ríkisstjórnarinnar á að fjölga störfum á landsbyggðinni, og í anda skýrslu landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra, er lagt til að opnuð verði þriggja manna starfsstöð skjalasafns sendiskrifstofanna hjá eða í nágrenni við héraðsskjalasafn,“ segir í fjárlagafrumvarpinu.