Skjólgarður og olíuafgreiðsla við smábátahöfnina á Sauðárkróki

Sauðárkrókshöfn. Mynd/BÞ
Sauðárkrókshöfn. Mynd/BÞ

Fjallað var um framkvæmdir við smábátahöfnina á Sauðárkróki á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar 31. mars sl. Í fundargerð nefndarinnar kemur fram að vinna við gerð skjólgarðs við smábátahöfnina hófst 29. janúar sl. Búið er að keyra fyllingarefni í u.þ.b. 100m af 150m og er grjótröðun hafin í hluta garðsins. Áætluð verklok er 15. maí nk. 

„Við framkvæmdina myndast um 1.800m2 svæði sem fylla þarf upp í. Fylling svæðisins var ekki innifalinn í útboði en áætlaður kostnaður við fyllingu er um 6,5 milljónir. Nefndin leggur til að beðið verði með fyllingu á svæðinu þar til síðar þar sem mögulega má nýta dýpkunarefni til uppfyllingar á svæðinu,“ segir í fundargerð. 

Á sama fundi kom fram að Olís hf. hefur óskað eftir að fá að setja upp flotbryggjueiningar við suðurgarð á Sauðárkróki og koma þar upp olíudælum til að þjónusta smábátasjómenn. „Í dag eru olíudælur staðsettar uppi á bryggjunni og þurfa þeir sem dæla á báta sína að klifra upp stiga á bryggjuþilinu til að komast að dælunum,“ segir í fundargerð.

Flotbryggjueiningarnar verða átta eða tólf metrar á lengd og staðsettar á sama stað og núverandi dælur. Stálbitar verða soðnir utan á þilið og bryggjan tengd við stálbitana þannig að hún fylgi sjávarföllum. Komið verður fyrir um átta metra löngum landgangi frá flotbryggjunum og upp á land. Olís hf. greiðir fyrir flotbryggjurnar og uppsetningu þeirra ásamt að sjá um nauðsynlegt viðhald á þeim. Nefndin samþykkti framkvæmdina en leggur áherslu á að ströngustu kröfum verði fylgt varðandi mengunarvarnir. 

Fleiri fréttir