Skoða á hitaveitu lögbýla norðan Reykja

Á fundi byggðaráðs Húnaþings vestra á dögunum mættu til viðræðna þeir Skúli Einarsson og Böðvar Sigvaldi Böðvarsson þar sem þeir greindu frá fundi sem haldinn var meðal nokkurra aðila í Hrútafirði sem áhuga hafa á skoðun möguleika á lagningu hitaveitu að lögbýlum norðan Reykja.

Forstöðumaður tæknideildar kynnti niðurstöður frumskoðunar á umræddri hitaveitulögn.Fól byggðarráð oddvita og sveitarstjóra að ganga til viðræðna við

hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir um mögulegan framgang málsins.

Fleiri fréttir