Skoða möguleika á hitaveitu norðan Reykja
Á fund byggðaráðs Húnaþings vestra sem haldinn var s.l. mánudag mættu til viðræðna þeir Skúli Einarsson og Böðvar Sigvaldi Böðvarsson sem greindu frá fundi sem haldinn var meðal nokkurra aðila í Hrútafirði sem áhuga hafa á skoðun möguleika á lagningu hitaveitu að lögbýlum norðan Reykja.
Forstöðumaður tæknideildar kynnti niðurstöður frumskoðunar á umræddri hitaveitulögn og fól byggðarráð oddvita og sveitarstjóra að ganga til viðræðna við hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir um mögulegan framgang málsins.